Komin aftur heim..
Ekkert
smá gott!!! Það er sko alveg rétt þegar fólk er að segja að það
sé stress á Íslandi... Guð minn góður!!! Slakið á fólk!!! Þetta
er slæmt fyrir heilsuna!!!
Ferðin heim gekk bara
ágætlega, fyrir utan alla biðina eftir töskunum og rússnesku
fyllibytturnar sem höfðu greinilega verið í hörku slagsmálum
kvöldið áður... Ekkert allt of góð lykt af þeim, en sem betur fer
sváfu þeir alla leiðina...
Þegar við lenntum þá þurftum
við fyrst að bíða heillengi í vélinni því að apparatið sem vísar
vélinni upp að rananum var bilað
... Svo þurftum við að bíða í
rúman klukkutíma eftir töskunum svo að við vorum orðnar ansi
þreyttar og pirraðar
... En ekkert smá ánægðar að vera komnar
heim, og æðislegt að sjá Ericu aftur!!!
Þegar heim var komið var svo
bara stokkið til kallanna úti á horni og keypt Shawarma, franskar
og salatmayo, kósý afslöppun og að sjálfsögðu opnuð ein
hvítvín.
Að koma aftur í skólann var
æðislega gaman og maður fékk ekkert smá góðar móttökur... Það er
sko alveg pottþétt að nú er ég komin HEIM!!!


Það má samt ekki misskilja
þetta... Það var mjög gott að koma til Íslands og hitta familíuna
og fara með strákunum á djammið
... Nokkur ansi góð kvöld á Hressó
að hlusta á Danna spila með Touch.
Algjörir snillingar þessir
strákar!!! Mæli klárlega með þeim sko!!!
Stundum var auðvitað drukkið
aðeins og mikið
og sofið of lítið, en það er bara gaman af því
svona annað slagið.
Svo var náttúrulega frábært að
Maggi skildi geta komið suður í heimsókn í nokkra daga heimsótt
mig, höfðum það rosa notalegt og kósý
Hrefna skrapp svo í verslunar
ferð til rvk með bróa sínum og náði ég að hitta hana, bara rétt í
klukkutíma
en það er sko betra en ekki neitt. Æðislegt að sjá
hana.
Ég gat því miður ekkert hitt
Möggu Lilju sem var mjög leiðinlegt, þannig að bubblý og sígó verða
bara að bíða þangað til næst... Skrítið að hitta ekki vini sína í
svona langann tíma...
Stjáni stoppaði nú ekki lengi
á klakanum þannig að ég náði lítið að hitta hann, en við náðum að
fara á eitt gott djamm á Hressó.. Hann þóttist eitthvað vera
þreyttur og ætla að vera edrú.. hehehehe... en það fór nú ekki
alveg svoleiðis... Enduðum á snepplunum
Svo má auðvitað ekki gleyma öllum þessum
dýrindis hádegis-deitum og kaffihúsum sem ég fór á með Guðrúnu
Sigríði
... Bara gaman og nóg að kjafta um
En jæja, ég ætla að fara að
hætta þessu blaðri og fara lesa... Á að halda fyrirlestur á morgun
og megnið af liðinu sem er með mér í hóp er veikt, svo að það
verður eitthvað skrautlegt
Heyri í ykkur síðar